iSpeculate.net
Eftir að ég yfirgaf annálana fyrir rúmu ári hef ég unnið að því að sameina og setja upp varanlegt bloggheimili fyrir færslur mínar jafnt á ensku og íslensku. Hluti af því verkefni hefur verið að fara í gegnum eldri færslur og merkja þær (e. tag).
Nú er svo komið að nýja bloggsvæðið mitt er komið í gagnið á ispeculate.net, en þar má nálgast allar (eða a.m.k. allflestar) færslur sem ég hef skrifað, fyrst á simnet.is/jennyb, síðar á annall.is/elli og enn seinna á elli.annall.is. Eins eru þar vísanir á ýmis önnur skrif mín.
Síðustu vikur hef ég reyndar að mestu verið að vinna í tilvísanabloggi, um leið og ég hef skannað í gegnum ýmis gögn úr náminu mínu.
En hvað um það, ég hef komið mér fyrir til lengri tíma á: www.ispeculate.net
