elli.annáll.is

AnnállDaglegtEnglishKirkjanSkólinnStjórnmálTrúmálViðskipti
  • Annálar

  • Tenglar

  • Eldri færslur

  • Leit

Míka og hógværðin

14.55 10/9/08 + 1 ath.

Ég hélt ég myndi seint gerast rannsakandi hebreskra sagna, en stundum þarf að gera meira en gott þykir. Þannig ákvað ég að nota fyrsta pappírinn af 10 í Gamlatestamentisfræðum hér í TLS, og skoða orðið “hógværð” í Míka 6.8. Mér til undrunar lærði ég fljót að nafnorðið hógværð er í raun þýðing á sögn í hebresku sem ég treysti mér ekki að skrifa. Þessu næst ákvað ég að skoða hvar þessi ágæta sögn kemur fyrir annars staðar í hebresku og niðurstaðan var 0. Ég hugsaði sem svo að hægverska væri nú varla svo sjaldgæf í GT, svo til að leita annarra hebreskra orða sömu merkingar fór ég öfuga leið og leitaði að orðinu hógværð, demutig, ydmygt, ydmykt og ödmjukhet í GT. Þessi orð koma öll fyrir öðru hvoru, sér í lagi ýmsar útgáfur af demutig, en mér til skelfingar sjaldnast í sömu versum. Þannig að mér varð lítið ágengt í þessari athugun minni, enda hógvær og af hjarta lítillátur og gafst því upp. Ég hins vegar skrifaði um leit án árangurs ágætan pappír sem ég mun skila á eftir.

Meistaranámi í leikmannafræðum næstum lokið

07.27 14/5/08 - 0 ath.

Í fyrramálið mæti ég í síðustu kennslustundina í meistaranáminu mínu í leikmannafræðum (Master of Lay Ministry). Jafnframt skila ég ritgerð um Sálgæslu sem verkefni safnaðarins alls, sem ég var að ljúka við að skrifa núna kl. 3:19, en geri reyndar ráð fyrir að lesa og leiðrétta í fyrramálið (á eftir). Það er við hæfi að leikmannanámið mitt endi á ritgerð, þar sem ég gagnrýni málefnalega en ákveðið prestamiðlægni kirkjunnar og bendi meðal annars á hvernig Biblíurýni og veikur sakramentisskilningur kirkjunnar, gerði sálgæslu að sérstöku fagi presta, í tilraun til að öðlast hlutverk þegar allt benti til að prédikunarhlutverkið og útdeiling sakramentana hefðu misst gildi sitt. Mér til stuðnings vísa ég í tvo stórkostlega ólíka fræðimenn. Annars vegar anglíkana að nafni A.J. van den Blink, mikinn sálgæslugúru og hins vegar gasprara úr ranni evangelista eða baptista að nafni Reggie McNeal.

[Ég skilaði ritgerðinni rafrænt kl 8:46 í morgun og mætti þar af leiðandi 17 mínútum of seint í tíma sem byrjaði 8:30. Þegar tímanum lauk núna kl. 9:45 er ég því formlega búin með öll verkefni og alla tíma vegna MALM gráðunnar. Nú er bara að bíða fram á laugardaginn 24. og sjá hvort ég fái ekki pappír um afrekið.]

Verkefnaskil og námið mitt

02.22 13/5/08 - 0 ath.

Í dag kl. 13:10 sendi ég með tölvupósti lokaverkefnið í námskeiðinu Transformational Leadership, ritgerð upp á rúmlega 20 síður til kennarans míns í Methodist Theological School of Ohio. Ég fékk tölvupóst frá kennaranum mínum kl. 14:14, þar sem hún var búin að fara yfir verkefnið og tillkynnti mér að einkunnin mín fyrir kúrsinn væri B. Það liðu þannig 64 mínútur frá því að ég skilaði þar til kennarinn hafði lokið við að lesa það yfir, skrifa ábendingar og athugasemdir við ritgerðina og gefa mér einkunn fyrir kúrsinn.
Áfram…

Að breyta heiminum

05.27 23/2/08

Í náminu rekst ég á margvíslega starfsemi sem vekur athygli mína og miðar að því að breyta heiminum. Eitt af því sem ég staldraði við í vikunni var annars vegar CIDA City Campus, sem býður upp á leiðtoganám fyrir ungt fólk í Suður-Afríku og hins vegar hið áhugaverða starf Grameen bankans sem er reyndar betur kynnt á heimsvísu.

Lýtalæknar eða líknardeild

15.00 8/2/08 + 2 ath.

Þetta misserið, það síðasta í MALM-náminu, þarf ég að glíma þónokkuð við ecclesiology (guðfræði kirkjunnar) og líklega er það eftir allt fræðiheitið á því sem ég er að gera hér, þó ég nálgist það meira út frá hagnýtri guðfræði en trúfræði, áhersla sem gæti breyst í STM-náminu ef ég tæki fleiri námskeið í trúfræði. Þörf mín fyrir að fara í svona nám vaknaði fyrir alvöru þegar ég var við störf í Grensáskirkju, mig langaði til að læra um það sem ég var að gera þar. Áfram…

Gleði er ofmetin!

04.55 4/2/08 - 0 ath.

Einn af skrautlegum fræðimönnum sem ég hef hitt stuttlega hér í BNA er Israel Galindo. Nýlega sá hann ástæða til að skrifa bloggfærslu sem ég vil halda til haga. Ég vil jafnframt taka fram að vísunin í færsluna hans merkir ekki að ég sé að fullu sammála öllu sem hann heldur fram, en lokaorðin eru sérlega áhugaverð að mínu mati.

Einfaldur

16.55 1/2/08 + 1 ath.

Eitt af því sem er hvað erfiðast við að stíga út fyrir mörk öryggisins, er að horfast í augu við eigin barnaskap og einfaldleika. Í janúar dvaldi ég í Detroit og var neyddur til að horfast í augu við forréttindi mín og rasisma á algjörlega nýjan hátt. Ég gæti skrifað lærða kafla um ungbarnadauða í fátækrahverfum í BNA, misbeytingu valds af hendi lögreglunnar, spillta stjórnmálamenn, kynþáttamisrétti, sálarmorð á samkynhneigðum og margt fleira sem ég sá með eigin augum þar sem ég heimsótti heilsugæslu, barnaspítala, geðdeildir, skrifstofu borgarstjóra og tók í hendina á einhverjum spilltasta stjórnmálamanni BNA, heimsótti félagsmálaþjónustu, gistiheimili fyrir heimilislausa og ræddi við kirkjugesti og presta í jafnt svörtum og hvítum kirkjum í þessu ríkasta landi heims. Ég var enda reiður fyrstu fjóra dagana, ég kallaði samnemendur mína fífl, fyrir að taka þátt í svona samfélagi og bregðast ekki við. Ég benti þeim á að ungbarnadauði í Detroit væri sjö sinnum meiri en í mínu heimalandi, ég hneykslaðist á misskiptingunni í skólakerfinu sem við heyrðum um frá skólastjórum almenningsskóla í borginni og svo mætti lengi telja.

Það var ekki fyrr en á fjórða degi að ég þorði að horfast í augu við sjálfan mig og mínar aðstæður í besta landi í heimi. Ég hugsaði til þess að auður sumra Íslendinga er byggður á atvinnulausum símamönnum í Austur-Evrópu, mér varð hugsað til þess hvernig stjórnmálamenn á Íslandi eins og Gunnlaugur M. Sigmundsson hafa selt sjálfum sér ríkiseignir. Mér varð hugsað til þess hvernig stjórnmálamenn á Íslandi sem aðhyllast jöfnuð hafa uppi stórar hugmyndir um að innleysa milljarðahagnað í orkuveitum í fátækustu löndum heims. Vissulega er Detroit Íslendinga ekki staðsett í Norður-Atlantshafi, okkar Detroit er í Búlgaríu. Áfram…

What matters?

03.49 20/11/07 - 0 ath.

As part of my studies in Organizational Behavior I created a tag cloud using my Executive Summaries from the readings. A tag cloud will be used by my group in our final project.

cloud

Sjálfstýrð teymi

17.58 8/11/07 - 0 ath.

Einn af fjölmörgum bloggurum sem ég les reglulega hefur sérstakan flokk sem kallast dylgjublogg. Þetta gæti flokkast undir það.

Eitt af fjölmörgum verkefnum hér í Organisational Behavior í síðustu viku var að fjalla um “self-managed teams” (e. sjálfstýrð teymi). En slík eru talin allra meina bót. Í verkefninu átti ég að fjalla um reynslu mína af slíkum teymum og bera saman við kenningarnar. Nú má segja að sjálfstýrð teymi einkenni uppbyggingu félagasamtaka eins og KFUM og KFUK. Því leitaði ég í reynslu mína sem æskulýðsfulltrúi þar. Minnistæðasta teymið frá þeim tíma, með fullri virðingu fyrir deildarstarfsteymum, er án vafa undirbúningshópur landsmóts unglingadeilda líklega 2002, en ég bar ábyrgð á þeirri ákvörðun að skipa í nefndina hóp efnilegra leiðtoga og gaf þeim lausan tauminn í skipulagsvinnu, í samræmi við þær kenningar sem þykja bestar þegar kemur að sjálfstýrðum teymum. Alla vega er það svo í minningunni. Ég reyndar vissi ekkert um slík teymi og kenningar á því sviði á þessum tíma, svo ég var ekki nægilega meðvitaður um hætturnar sem gætu skapast.

Ég vona að kennarinn minn hafi hins vegar ánægju og gleði af að lesa um það þegar ung og ábyrg stúlka kom að máli við mig á miðju landsmóti til að segja mér hvað væri framundan þá um kvöldið. Annars verð ég að segja að ég gat hlegið þegar ég skrifaði frásögnina og bar atburðarásina saman við kenningarnar nú meira en 5 árum síðar, en boy child, o, boy child, mér var ekki hlátur í huga þá.

Skírn

15.56 6/11/07 - 0 ath.

Í tíma í Pastor as Leader var ekki bara rætt um kosti og galla Facebook sem hjálpartækis í safnaðarstarfi, heldur var nokkuð rætt um skírnina og guðfræðileg álitamál sem upp kunna að koma. Á Íslandi hefði þessi umræða verið óþörf enda öllum spurningum svarað með lögum frá 27. júlí 1771.

… höfum Vér allramildilegast ákveðið … að foreldrarnir skuli vera sjálfráðir um það, eftir því sem heilsa barnsins og ástæður útheimta, bæði hvort þau láta skíra það heima, en prestur má eigi synja um það, ef hann er þess beðinn, og hvort þau síðan bera það í kirkju, ef það verður gert án þess að lífi barnsins eða heilbrigði sé stofnað í hættu; foreldrunum skal þó eigi vera skylt að gera það innan nokkurs tiltekins tíma …

Ég veit að einhverjum þykir prýði að konungstilskipunum um skírn og fermingu í lagasafninu, e.t.v. voru hæstaréttardómararnir að vísa til þeirra í dómi sínum gegn Ásatrúarfélaginu, en lög sem eru markleysa, enginn fer eftir og eiga ekki við í dag eru engum til gagns.

« Fyrri færslur ·

© elli.annáll.is · Færslur · Ummæli